Sjáðu nákvæmlega hvað er að lögninni
Með lagnamyndun sendum við sérstaka röramyndavél inn í lögnina og skoðum ástand hennar í rauntíma. Þannig finnum við nákvæmlega orsök stíflna, leka eða endurtekinna vandamála — án þess að þurfa að grafa eða brjóta upp.
Við erum útbúin hágæða röramyndavélum og getum myndað allar tegundir lagna, bæði innan og utan húss. Myndatakan sparar tíma og kostnað og gefur skýra mynd af því hvað þarf að gera.
Hvenær á að nota lagnamyndun?
- Endurteknar stíflur í sömu lögn
- Grunur um leka, brot eða rótarinnvöxt
- Óþekkt lega eða ástand lagna
- Úttekt fyrir húsakaup eða framkvæmdir
Kostir myndatöku
- Nákvæm staðsetning vandamálsins
- Engin óþarfa gröftur eða niðurrif
- Skýr grundvöllur fyrir viðgerð og verðmat
- Hægt að skoða bæði innan og utan húss